Ók jarðýtu inn í íbúðarhús

Ekki er vitað af hverju maðurinn ákvað að keyra inn …
Ekki er vitað af hverju maðurinn ákvað að keyra inn í húsið. AFP

Karlmaður var ákærður fyrir tilraun til manndráps í Ástralíu í morgun. Maðurinn stal jarðýtu, eyðilagði fjóra bíla og keyrði því næst inn í hús. Lögregla var kölluð að heimili í Terabla snemma í morgun en þrír voru í húsinu þegar maðurinn ók inn í það.

Rúmlega fimmtug kona og tvær dætur hennar, 15 ára og 20 ára, voru í húsinu og flúðu þær úr húsinu með aðstoð nágranna. Sluppu þær allar án meiðsla. Lögregla neyddist til að brjóta rúðu í jarðýtunni og nota piparsprey til að yfirbuga manninn.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að fjölskyldan í húsinu sem var eyðilagt þekki til mannsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert