Kveikti í sjálfum sér í lest

AFP

Tveir eru látnir eftir að annar þeirra kveikti í sjálfum sér um borð í lest í Japan. Maðurinn hafði hellt bensíni yfir sig í fremsta vagni lestarinnar og bar svo eld að.

Lestin var á leið frá Tokyo til Osaka og um þúsund manns voru um borð. Lestin var nálægt borginni Odawara þegar þrýst var á neyðarhnapp og upp komst um eldinn. Að minnsta kosti sex slösuðust auk þeirra tveggja sem létu lífið. 

Allar lestir á leið frá Tokyo til Osaka hafa verið stöðvaðar.

Lítið hefur verið gefið út um málið, en lögregla rannsakar það sem sjálfsvíg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert