Skutu 17 ára dreng til bana

Hermenn í West Bank.
Hermenn í West Bank. AFP

Ísraelskir hermenn skutu palestínskan dreng til bana á Vesturbakkanum í dag eftir að hann kastaði steinum í jeppa þeirra. Drengurinn hét Mohammad Kosba og var 17 ára gamall, en hann varð fyrir tveimur byssuskotum og lést samstundis.

Talsmaður hersins sagði í samtali við AFP-fréttastofuna að hermennirnir hafi verið búnir að biðja drenginn að hætta að kasta steinum og þeir hafi skotið viðvörunarskotum upp í loftið. Þegar hann hafi ekki hætt hafi þeir hins vegar ákveðið að skjóta í átt að honum með fyrrnefndum afleiðingum.

Ekki er þó talið að hermönnunum hafi stafað hætta af drengnum, en jeppinn er sagður hafa beyglast við steinkastið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert