Vörubíll splundraðist við að keyra á brú

Vörubíll splundraðist þegar hann keyrði á brú í Massachusettsríki í Bandaríkjunum nýlega. Myndbandið er úr öryggismyndavél sem er nálægt brúnni, en lögregla heimilaði birtingu þess nýverið.

Atvikið átti sér stað við East Street brúna í bærnum Westwood. Þetta er í sjötta skipti sem vörubíll keyrir á þessa sömu brú.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert