Er skemmda verkið falsað?

Verkið Flower eftir Paolo Porpora
Verkið Flower eftir Paolo Porpora

Verk ítalska málarans Paolo Porpora hafa vart vakið jafn mikla athygli meðal almennings og nú en það er ekki vegna verkanna sjálfra heldur að tólf ára piltur hafi óvart skemmt eitt þeirra. Nú hafa vaknað spurningar um hvort verkið er falsað.

Líkt og greint var frá á mbl.is í gær varð tólf ára gam­all dreng­ur fyr­ir því óhappi á sunnudag að skemma mál­verk sem metið er á 1,5 millj­ón Banda­ríkja­dala, 193 millj­ón­ir króna, þegar hann hrasaði og datt á verkið á sýn­ingu í Taív­an.

Mál­verkið er eft­ir ít­alska lista­mann­inn Paolo Porpora og er frá sautjándu öld. Verkið er hluti af sýn­ingu á 55 verk­um í höfuðborg Taív­an, Taipai.

Í dag hafa hins vegar sérfræðingar bent á að verkið sé jafnvel ekki eftir Porpora og frá sautjándu öld. 

Í fréttum fjölmiðla í Taívan í dag kemur fram að málverkið svipar mjög til annars verks, Composizione con vaso di fiori, sem er frá átjándu öld og er eftir Mario Nuzzi. Það verk er með mun lægra verðmat eða 25-30 þúsund evrur eða 3,7-4,4 milljónir króna á uppboði hjá Della Rocca Casa d'Aste uppboðshúsinu árið 2012. Ekki tókst að selja verkið á uppboðinu.

David Sun, sem stýrir TST Art of Discovery, sem kostar sýninguna í Taívan, segir málverkin tvö ólík án þess að skýra ummæli sín frekar. 

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="480" src="https://www.youtube.com/embed/flkVWwrGTAM" width="853"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert