Landamæragæsla eins lengi og þarf

Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands.
Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands. AFP

Frakkar ætla að halda uppi virku landamæraeftirliti gagnvart öðrum ríkjum Evrópusambandsins eins lengi og hætta verður talin á hryðjuverkaárásum. Þetta sagði Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands, í dag en Frakkar eru aðili að Schengen-samstarfinu sem snýst einkum um að fella niður slíkt landamæraeftirlit.

„Frakkland mun viðhalda landamæraeftirlitinu sem komið var á síðasta föstudag eins lengi sem hryðjuverkaógnin gerir það nauðsynlegt,“ sagði ráðherrann á blaðamannafundi eftir neyðarfund innanríkisráðherra ríkja Evrópusambandsins. Mikil hætta væri á hryðjuverkum og það væri skylda franskra stjórnvalda að vernda borgara sína.

Heimilt er samkvæmt reglum Schengen-samstarfsins að taka upp virkt landamæraeftirlit gagnvart öðrum Schengen-ríkjum þegar þörf er talin á auknu öryggi en aðeins í tíu daga. Mögulegt er að framlengja þann tíma um 20 daga ef þörf krefur. Áform franskra stjórnvalda ganga því gegn þeim reglum Schengen-samstarfsins.

Innanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu á neyðarfundinum í dag að herða reglur Schengen-samstarfsins þegar kemur að öryggisgæslu á ytri landamærum svæðisins. Þannig verði allir sem um þau fara að framvísa vegabréfum auk þess sem persónuupplýsingar þeirra verða bornar saman við gagnagrunna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert