Tollverðir handteknir og landamærum lokað

Há girðing er nú á landamærum Búlgaríu og Tyrklands til …
Há girðing er nú á landamærum Búlgaríu og Tyrklands til að hindra för flóttamanna. AFP

Yfirvöld í Búlgaríu lokuðu í dag landamærum sínum að Tyrklandi í kjölfar þess að fjórtán tollverðir voru handteknir fyrir spillingu. Þetta staðfestir saksóknarinn Sotir Tsatsarov.

„Allir tollverðirnir á morgunvaktinni sem stjórna öllum komum til Búlgaríu voru handteknir vegna rannsóknar á smyglhring,“ sagði saksóknarinn í útvarpsviðtali í dag. 

Hann bað ferðamenn afsökunar vegna lokunarinnar og benti á að umferð fólks frá Búlgaríu til Tyrklands væri með eðlilegum hætti.

Landamærastöðin sem um ræðir er sú stærsta á Balkanskaga og þar fara margir um milli Evrópu og Mið-Austurlanda. 

Í dag voru margra kílómetra langar raðir af bílum við stöðina. 

Ekki er vitað nákvæmlega hvaða starfsemi glæpahringjanna er verið að rannsaka en útvarpsstöð í Búlgaríu heldur því fram að sígarettum hafi m.a. verið smyglað í miklum mæli til álfunnar um landamærastöðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert