50 bíla árekstur á hraðbraut

AFP

Nokkrir eru látnir eftir að meira en 50 bílar lentu í stórum árekstri í fylkinu Pennsylvania í Bandaríkjunum í dag. 40 manns hafa verið fluttir á spítala og 70 í bráðabirgðaskýli meðan hlúð er að þeim.

Slysið átti sér stað 120 kílómetra norðvestur af borginni Philadelphia, en bílar og flutningabílar klesstu hver á annan og stífluðu þriggja akreina hraðbrautina. Sagt er frá málinu á vef BBC.

Samkvæmt upplýsingum frá spítala í nágrenninu voru þrír fluttir þangað lífshættulega slasaðir og þrír til viðbótar voru alvarlega meiddir. Yfirvöld hafa varað ökumenn á svæðinu við lífshættulegum akstursskilyrðum á svæðinu, en snjór og hálka er á vegum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert