„Guð er mikill“ og hávær hvellur

Vitni að sprengingunum á Zaventem-flugvellinum í Belgíu í morgun segjast hafa heyrt kallað „Guð er mikill“ eða Allah Akbar áður en sprengingarnar urðu. Annað vitni lýsir því hvernig hrunið hafi úr veggjum eftir fyrstu sprenginguna og hvernig hún hafi bundið utan um sár fórnarlambs með opin beinbrot. 

AFP fréttastofan hefur verið með fólk á staðnum í morgun og í myndskeiðinu eru viðtöl við vitni að sprengingunum sem óttast er að hafi orðið tugum að bana. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert