Vildi skjóta Donald Trump

Donald Trump.
Donald Trump. AFP

Bandarískur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að reyna að ná skammbyssu af lögreglumanni í þeim tilgangi að skjóta forsetaframbjóðandann Donald Trump á kosningafundi í borginni Las Vegas í Bandaríkjunum. Fréttaveitan AFP greinir frá þessu.

Fram kemur í ákærunni að maðurinn, Michael Sandford, hafi reynt að ná byssunni af lögreglumanninum á kosningafundi í spilavítinu Treasure Island. Áður en honum hafi tekist það hafi hann verið yfirbugaður. Sandford hafi lýst því yfir að hann hafi komið til Las Vegas í þeim gagngera tilgangi að myrða Trump.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert