Að minnsta kosti tuttugu óbreyttir borgarar létu lífið í loftárásum Tyrkja í Sýrlandi í dag og 50 særðust. Hafa aðgerðir tyrkneska hersins í landinu nú staðið yfir í fimm daga, en þær beinast gegn bæði Ríki íslams og uppreisnarsveitum Kúrda í Sýrlandi.
Loftárásirnar voru gerðar á Jeb el-Kussa, þorp suður af landamærabænum Jarablus. Áhlaup tyrkneska hersins hófst fyrr í vikunni þegar tyrkneskar herflugvélar og skriðdrekar fóru yfir landamæri Sýrlands ásamt sérsveitarmönnum.
Sveitir sýrlenskra uppreisnarmanna tilkynntu í kjölfarið að þær hefðu náð yfirráðum í Jarablus með aðstoð tyrkneska hersins, en bærinn var áður á valdi hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams.
Fyrsti tyrkneski hermaðurinn lét lífið í Sýrlandi í gær en hann var um borð í skriðdreka sem sprengdur var upp af kúrdískum vígamönnum. Kúrdar segjast alls hafa eyðilagt þrjá skriðdreka.
Stjórnvöld í Tyrklandi segja aðgerðir tyrkneska hersins beinast gegn bæði Ríki íslams og uppreisnarsveitum Kúrda í Sýrlandi.