Hvað verður um Bibi?

Ashiq Masih, eiginmaður Asia Bibi, sést hér benda á veggspjald …
Ashiq Masih, eiginmaður Asia Bibi, sést hér benda á veggspjald þar sem þess er beðið að hún verði látin laus. AFP

Hæstiréttur Pakistans hefur frestað því að taka fyrir áfrýjun dauðadóms yfir kristinni fimm barna móður eftir að einn dómaranna sagði sig frá málinu. Asia Bibi hefur setið á dauðadeild frá árinu 2010 en hún var dæmd til dauða fyr­ir guðlast þegar hún lenti í rifr­ildi við mús­limska konu vegna vatns­skál­ar. 

Gríðarlegur öryggisviðbúnaður er í höfuðborginni, Islamabad, og voru þúsundir hermanna á vakt í nágrenni hæstaréttar þar sem taka átti mál Bibi fyrir í dag. En þegar einn af þremur dómurum, Iqbal Hameed ur Rehman, sagði sig frá málinu varð ljóst að ekki yrði hægt að taka málið fyrir í dag.

„Ég var einn af dómurunum sem hlýddi á mál Salmaan Taseer og þetta mál er tengt því máli,“ sagði dómarinn þegar hann tilkynnti það í réttarsalnum í morgun að hann ætlaði að segja sig frá málinu.

Taseer, sem var frjálslyndur ríkisstjóri í íhaldsríkinu Pakistan, var skotinn til bana í Islamabad árið 2011 fyrir að tala máli Bibi. Morðinginn, Mumtaz Qadri, var hengdur snemma árs 2016 og töldu frjálslyndir Pakistanar aftökuna framfaraskref á meðan harðlínumenn kröfðust þess að Bibi yrði tekin af lífi. Ekki er búið að ákveða hvenær málið verður tekið upp aftur.

Frétt mbl.is: Óttast um líf kristinnar konu

AFP-fréttastofan hefur eftir yfirmanni í lögreglunni að um þrjú þúsund hermenn hafi verið sendir út á götur borgarinnar í öryggisskyni.

Um 100 liðsmenn úr óeirðalögreglunni eru á vakt fyrir utan hæstarétt í Islamabad en lögmaður Bibi, Saif-ul-Mulook, segist vera vel undirbúinn og vongóður fyrir hennar hönd.

Guðlast er gríðarlega viðkvæmt málefni í Pakistan. Allir sem eru sakaðir um að móðga íslam eiga á hættu að vera teknir af lífi af æstum harðlínumönnum. Ekki er óalgengt að aftökur fari fram án dóms og laga í slíkum málum og oft beinist hatrið gegn kristnu fólki.

Ef Bibi verður tekin af lífi þá verður hún fyrsta manneskjan til þess að vera tekin af lífi fyrir guðlast í Pakistan.

Esham Masih, dóttir Asia Bibi, sést hér lesa bók fyrir …
Esham Masih, dóttir Asia Bibi, sést hér lesa bók fyrir móður sína í fangelsinu. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert