Trump er ekki skemmt

Alec Baldwin fór með hlutverk Trumps í þættinum.
Alec Baldwin fór með hlutverk Trumps í þættinum. AFP

Donald Trump var ekki skemmt yfir sjónvarpsþættinum Saturday Night Live á NBC í gækvöldi ef marka má færslu hans á Twitter snemma í morgun.

Trump segir tímabært að senda þennan leiðinlega og þreytandi þátt á eftirlaun og ekki sé Alec Baldwin skárri. Í þættinum fór Baldwin með hlutverk frambjóðandans og Kate McKinnon með hlutverk Hillary Clinton.

Grín er gert að báðum frambjóðendum og ekki gert upp á milli þeirra en sjón er sögu ríkari:

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Trump gagnrýnir fjölmiðla fyrir það hvernig þeir komi fram við hann. Til að mynda séu fjölmiðlar á bak við frásagnir kvenna um að hann hafi ítrekað gerst sekur um kynferðislega áreitni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert