Treysta Svíþjóðardemókrötum best

Jimmie Åkesson, formaður Svíþjóðardemókrata.
Jimmie Åkesson, formaður Svíþjóðardemókrata. AFP

Svíþjóðardemókratar njóta mests trausts sænskra kjósenda í þremur af átta málaflokkum sem teknir eru fyrir í skoðanakönnun Aftonbladet/Inizio.

Kjósendur telja að Svíþjóðardemókratar séu best fallnir til þess að sinna varnarmálum landsins og málefnum innflytjenda og flóttafólks. Þar eru 44% kjósenda, tvöfalt fleiri en í síðustu þingkosningum, á því að þar sé Svíþjóðardemókrötum best treystandi. 

Jafnframt treysta kjósendur þeim best til þess að sinna málefnum aldraðra en flokkurinn höfðaði mjög til þess aldurshóps í síðustu kosningum. 

Svíþjóðardemókratar eru þjóðernisflokkur sem var þriðji stærsti flokkur Svíþjóðar í síðustu þingkosningum. Síðan þá hefur fylgi hans mælst nálægt 20%. 

Hér er hægt að lesa nánar um könnunina á vef Aftonbladet

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert