Það eru ekki allir jafn heppnir að vera á lífi eins og hundurinn Nalu. Vaskur slökkviliðsmaður gerði sér lítið fyrir og bjargaði hundinum úr brennandi húsi. Ekki nóg með það heldur blés hann lífi í hundinn og notaði munn við munn björgunaraðferðina í heilar 20 mínútur þar til hann komst til lífs á nýjan leik. BBC greinir frá.
Hundurinn lá meðvitundarlaus inni í brennandi húsi í borginni Santa Monica í Kaliforníu þegar slökkviliðsmaðurinn, Andrew Klein, bjargaði honum út og lífgaði hann við.
Hundurinn er við hestaheilsu í dag en hann var með súrefnisgrímu í sólarhring eftir atvikið.
A LIFE IS A LIFE! Firefighter saves a #dog that was unconscious for 20 minutes with mouth-to-snout resuscitation. https://t.co/dTkwMnUyGe pic.twitter.com/Ukfd6sZbFe
— ABC13 Houston (@abc13houston) March 24, 2017