20 særðust í sprengjutilræði

AFP

Yfir tuttugu særðust í sprengjutilræði á hersjúkrahúsi í Bangkok, höfuðborg Taílands, í dag. Þrjú ár eru í dag liðin frá því herinn tók völdin í landinu.

Að sögn vararíkislögreglustjóra, Srivara Rangsibrahmanakul, var um litla sprengju að ræða og ekki er vitað til þess að nokkur hafi látist í tilræðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert