Aðstoðarflugmaður flutningaflugvélarinnar sem brotlenti í gærmorgun í nágrenni Everest-fjalls, lést af sárum sínum í dag. Þetta kemur fram í frétt AFP-fréttaveitunnar. Þrír voru um borð í vélinni, en flugstjóri hennar lést í gær. Flugfreyja vélarinnar er ekki í lífshættu.
Öllum þremur í áhöfninni var bjargað á lífi úr flaki flugvélarinnar sem brotnaði í þrjá hluta þegar reynt var að lenda henni á Lukla-flugvellinum sem margir telja þann hættulegasta í heimi. Flugstjórinn lést síðan skömmu síðar á sjúkrahúsi.
Ekki liggur fyrir hvað olli því að flugvélin brotlenti en mikil þoka var á svæðinu.