Hello Kitty liggur undir grun

Frá stærstu Hello Kitty versluninni í Tókýó.
Frá stærstu Hello Kitty versluninni í Tókýó. AFP

Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins rannsaka hvort fyrirtækin Nike, Universal Studio og Sanrio, sem framleiðir Hello Kitty, hafi hindrað smásöluaðilum frá því að selja varning yfir landamæri innan sambandsins. 

„Við rannsökum hvort að leyfisveitingar og dreifikerfi fyrirtækjanna þriggja svipti neytendur vali og betri kjörum á innri markaðinum,“ sagði Margrethe Vestager, yfirmaður samkeppnismála hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Framkvæmdastjórnin mun skoða hvort fyrirtækin hafi brotið samkeppnislög Evrópusambandsins með því að meina framleiðendum og smásöluaðilum að selja varning yfir landamæri og á netinu. Þess konar fyrirkomulag takmarkar möguleika neytenda á að finna vinsælar vörur á lægra verði innan marka sambandsins. 

Rannsóknin snýr að margs konar vörum, til dæmis fötum, skóm og leikföngum, sem bera sum af stærstu vörumerkjum heims, þar á meðal Hello Kitty. Enginn tímarammi er settur fyrir rannsóknina og þegar upp er staðið er ekki víst að kærur fyrir samkeppnislagabrot á hendur þeim fylgi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert