Gerðu árás á vefi Ohio-ríkis

John Kasich, ríkisstjóri Ohio.
John Kasich, ríkisstjóri Ohio. AFP

Loka þurfti nokkrum vefsíðum á vefjum yfirvalda í Ohio-ríki í gær þar sem tölvuþrjótar höfðu brotist inn á þær og komið þar fyrir áróðri vígasamtakanna Ríkis íslams.

Meðal annars var vef ríkisstjóra Ohio, John Kasich, lokað. Skilaboðin sem rituð voru eru frá hópi sem nefnir sig Team System DZ og hóta þeir forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, hefndum.

Segja þeir að hann verði gerður ábyrgur fyrir hverjum blóðdropa sem fellur í í múslimaríki. „Ég elska Ríki íslams,“ var meðal annars skrifað með gulllituðu letri á svartan bakgrunn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert