Lögreglumennirnir sem voru sendir heim eftir að þeir héldu stærðarinnar veislu með miklu áfengi og kynlífsathöfnum á almannafæri eru aðeins mennskir. Þetta segir lögreglan í Berlín.
„Já, við skemmtum okkur,“ viðurkenndi lögreglan í Berlín í yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni. Tveir lögregluþjónar héldu upp á afmæli sitt, sagði enn fremur í yfirlýsingunni, og ákváðu samstarfsfélagar þeirra að halda upp á það.
Skemmtunin fór fram í húsnæði sem lögregluþjónunum hafði verið úthlutað en laganna verðir höfðu verið sendir til Hamborgar til þess að hjálpa til á meðan ráðstefna G20-ríkjanna fer fram í borginni 7. og 8. júlí næstkomandi. Búist er við tugum þúsunda mótmælenda til borgarinnar þessa daga.
„Þeir drukku, dönsuðu, pissuðu og já, virðast hafa stundað kynlíf,“ kom fram í yfirlýsingu lögreglunnar. Þar kom einnig fram að fyrir innan einkennisklædda búningana væru manneskjur með mikla ábyrgð.
Lögregluþjónar sem deildu aðstöðu með partýdýrunum voru einnig beðnir afsökunar á atvikinu.