Tala látinna heldur áfram að hækka

Verkamenn vinna að viðgerðum á brú sem gaf sig er …
Verkamenn vinna að viðgerðum á brú sem gaf sig er áin Bhogavo í Surendranagar flæddi yfir bakka sína. AFP

Tala látinna í miklum flóðum sem hafa orðið á Indlandi í kjölfar monsún rigninganna undanfarið heldur áfram að hækka. Að sögn indverskra yfirvalda hafa nú 76 manns hið minnasta farist í flóðunum. Mest hefur mannfallið verið í Gujarat fylki þar sem 11 hafa látið lífið frá því á laugardag og er rigningin í fylkinu enn að aukast.

„Sjö þeirra hafa látist síðasta sólarhringinni og að minnsta kosti fjögurra til viðbótar er enn saknað,“ hefur AFP-fréttastofan eftir Pankaj Kumar, hjá fylkisstjórninni í Gujarat.

Mikið tjón hefur einnig orðið í Arunachal Pradesh og Assam þar sem miklar aurskriður hafa fallið og í Assam fylki hafa 60 manns látið lífið frá því regntímabilið hófst í apríl.

Indversk stjórnvöld hafa kallað út herinn til að taka þátt í björgunaraðgerðum í þeim fylkjum sem verst hafa orðið úti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert