Myrtu þrjá lögreglumenn

Frá Nígeríu.
Frá Nígeríu. AFP

Þrír lögreglumenn voru myrtir þegar menn vopnaðir byssu réðust inn í dýragarð í vesturhluta Nígeríu í gær. BBC greinir frá.

Árásarmennirnir rændu því næst yfirmanni Ogba Zoo and Nature Park og höfðu sig á brott.

Upplýsingamálaráðherra Nígeríu hefur fordæmt árásina og sagt að hún eyðileggi mikla vinnu sem hefur verið unnin til að reyna að laða ferðamenn til landsins.

Talsmaður lögreglu segir að yfir 200 vitni hafi verið að ódæðinu. Engar upplýsingar eru um hverjir mennirnir eru eða hvort þeir hafi lagt fram einhverjar kröfur.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert