Nokkrir látnir eftir að bíll ók inn í mannfjölda

Lögregla er bún að girða af svæðið þar sem að …
Lögregla er bún að girða af svæðið þar sem að ekið var á gangandi vegfarendur. Vitað er að nokkrir eru látnir og um 30 manns til viðbótar slasaðir. AFP

Nokkrir eru látnir og um þrjátíu manns eru slasaðir eftir að bíll keyrði inn í mannfjölda í þýsku borginni Münster í Þýskalandi fyrir skömmu að því er BBC greinir frá. AFP-hefur eftir lögreglunni á staðnum að ökumaðurinn hafi að því loknu tekið eigið líf með því að skjóta sig.

Er hann sagður hafa ekið á litlum flutningabíl inn í mannfjöldann.

Lögregla biður fólk að halda sig fjarri vettvangi, en atburðurinn átti sér stað í nágrenni Kiepenkerl styttunnar í gamlabænum. Þá er fólk beðið um að vera ekki með getgátur um hvað hafi gerst.

Í vefútgáfu þýska tímaritsins Spiegel segir að yfirvöld í Þýskalandi geri ráð fyrir að um árás sé að ræða, þó ekki sé hægt að staðfesta það að svo stöddu.

12 manns létust í desember 2016 þegar flutningabíl var ekið inn í mannfjölda á jólamarkaði í Berlín.

Fréttin verður uppfærð.

Atburðurinn átti sér stað í gamla bænum í Münster.
Atburðurinn átti sér stað í gamla bænum í Münster. Kort/Google
Hjálparstarfsfólk í Münster á leið á slysstað.
Hjálparstarfsfólk í Münster á leið á slysstað. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert