Mannskæð skotárás á skóla í Texas

Átta manns hið minnsta eru sagðir hafa látist í skotárásinni.
Átta manns hið minnsta eru sagðir hafa látist í skotárásinni. Skjáskot/Twitter

Mannskæð skotárás átti sér stað í framhaldsskóla í Santa Fe í Texas í dag að sögn fréttastofu CNN. BBC segir átta manns hið minnasta hafa farist. Lögregla í Harris County staðfesti að lögreglumenn væru að aðstoða í „mannskæðu atviki“ en hefur ekki enn staðfeste fjölda látinna.

„Það er ekki lengur verið að skjóta og nú verið að sinna hinum særðu,“ var tilkynnt á Twitter-síðu lögreglunnar.

Skólayfirvöld segja atvikinu ekki lokið. Ed Gonzales hjá lögreglu Harris County staðfesti við CNN að tveir séu nú í haldi lögreglu vegna árásarinnar.

Árásin átti sér stað í skóla sem er um 50 km suðaustur af borginni Houston og hafa vitni lýst því hvernig nemendur hafi hlaupið frá skólanum er skotin heyrðust. Þá hafi einnig heyrst í viðvörunarbjöllum í skólanum.

Atburðarrásin sjálf virðist hins vegar ekki vera ljós, en vitni hafa þó sagt mann hafa gengið með haglabyssu inn í stofu þar sem myndlistakennsla var í gangi og hafa byrjað að skjóta. Ekki liggur fyrir hvort árásarmaðurinn hafi verið nemandi í skólanum.

Einn lögreglumaður er sagst hafa særst í árásinni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þegar tjáð sig um atvikið á Twitter. „Fyrstu fréttir lofa ekki góðu. Guð blessi okkur öll!“ sagði Trump á Twitter.


 

Þetta er þriðja skotárásin á skóla í Bandaríkjunum undanfarna viku og 22 skotárásin það sem af er þessu ári. Aukin umræða skapaðist um herta skotvopnalöggjöf í landinu í kjölfar skotárásar á skóla í Parkland í Flórída í febrúar sem kostaði 17 manns lífið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert