Fresta flugi Max-véla fram í september

Ein véla American Airlines.
Ein véla American Airlines. AFP

Banda­ríska flug­fé­lagið American Air­lines hefur hætt við öll flug með Boeing 737 Max-vélum til 3. september en áður hafði flugfélagið greint frá því að hætt yrði við öll flug með 737 Max-vélum til 19. ágúst.

All­ar Max-vél­ar Boeing hafa verið kyrr­sett­ar frá því að farþegaþota þeirr­ar gerðar í eigu Et­hi­opi­an Air­lines hrapaði 10. mars sl. Sam­bæri­legt flug­slys átti sér stað í Indó­nes­íu í októ­ber, en 346 manns létu lífið í flug­slys­un­um tveim­ur.

Fram kemur í tilkynningu frá American Airlines að þrátt fyrir þetta hafi flugfélagið trú á því að Max-vélarnar fái aftur leyfi til að fljúga. Það verði þegar Boeing hafi uppfyllt kröfur bandaríska flugvélaeftirlitsins og eftirlitsstofnanna víða um heim vegna uppfærslu á hugbúnaði vélanna.

Eins og áður hefur komið fram vinnur Boeing nú að því að uppfæra svokallaðað MCAS-kerfi bili, en það á að koma í veg fyr­ir að flug­vél­in of­rísi. Gallar í því kerfi eru taldar ástæður slysanna tveggja.

American Airlines mun því alls fella niður 115 flug en 737 Max-vélarnar voru kyrrsettar í mars. Flugfélagið á 14 vélar af þeirri gerðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert