Kjarnorkusveitir Rússa í viðbragðsstöðu

Vladimir Pútín, forseti Rússlands.
Vladimir Pútín, forseti Rússlands. AFP

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, hefur fyrirskipað þeim hersveitum Rússa sem sjá um fælingarvopn að vera í viðbragðsstöðu. Undir slílk vopn flokkast meðal annars kjarnorkuvopn.

Forsetinn segir þetta gert vegna „óvinsamlegra“ aðgerða Vesturvelda gegn Rússlandi.

Pútín greindi frá því áður en inn­rás­in í Úkraínu hófst að ríkið búi yfir kjarn­orku­vopn­um.

Pekka Haavisto, ut­an­rík­is­ráðherra Finn­lands, sagði í gær að hann teldi að Rúss­ar gætu verið til­bún­ir til að nota kjarn­orku­vopn í inn­rásinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert