70 kíló af kannabisefnum á heimili bæjarstjóra

70 kíló af kannabisefnum fundust á heimili bæjarstjórans.
70 kíló af kannabisefnum fundust á heimili bæjarstjórans. AFP/Michaela Stache

Franska lögreglan hefur handtekið bæjarstjóra Avallon eftir að 70 kíló af kannabisefnum fundust á heimili hans. 

Jamilah Habsaoui hefur verið bæjarstjóri Avallon frá árinu 2021.

Aðgerðin var hluti af lögreglurannsókn síðustu vikna á eiturlyfjasmygli í austurhluta bæjarins, að sögn saksóknarans Hugues de Phily. 

Hann greindi frá því að lögregla hefði gert leit á heimili bæjarstjórans, í ráðhúsinu og í apóteki þar sem Habsaoui starfaði. Megnið af fíkniefnunum fannst á heimili hennar. 

Tveir bræður bæjarstjórans voru einnig handteknir. 

Að sögn Phily fann lögregla einnig tæplega kíló af kókaíni, sjö þúsund evrur í seðlum og um 20 gullstangir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert