Ræðir við Bildt um ESB umsókn

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mbl.is/Ómar

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur í dag til Stokkhólms þar sem hann mun eiga fund með Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar á morgun, fimmtudag.

Svíþjóð fer nú með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins og mun Össur fylgja aðildarumsókn Íslands að ESB úr hlaði á fundinum. Þá munu þeir Bildt ræða umsóknarferlið og næstu skref.

Carl Bildt sagði í gær í samtali við Bloomberg fréttaveituna að aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu sé vel á veg komið vegna aðildar Íslands að evrópska efnahagssvæðinu.

Bildt sagði er hann kom fyrir nefnd þingmanna Evrópuþingsins í gær að Íslendingar hafi þegar gengið í gegnum stóran hluta þess aðlögunarferlis sem nauðsynlegt sé til aðildar.

„Það eru mikilvæg mál sem enn á eftir að leiða til lykta en stór hluti ferlisins hefur þó farið fram,” sagði Bildt.

Carl Bildt.
Carl Bildt. Reuters
mbl.is

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær