Einn í haldi vegna árásar í Heiðmörk og hinir tveir ætla að gefa sig fram

Lögreglan í Kópavogi segir einn mann nú í gæsluvarðhaldi sem þátt tók í líkamsárás með tveimur öðrum á ungan mann aðfaranótt sunnudags. Sá sem ráðist var á liggur nú á sjúkrahúsi en æðar í kviðarholi hans gáfu sig, en tekist hefur að stöðva blæðingarnar. Lögreglan segist hafa hringt í hina tvo árásarmennina og sögðust þeir ætla að gefa sig fram. Sá sem nú er í haldi var yfirheyrður í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert