Borgarstjóri gæddi sér á sviðum með nemendum í Hagaskóla

RAX

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri brá sér í hádegismat í Hagaskóla í dag þar sem haldinn var íslenskur matardagur. Á boðstólnum voru rammíslensk svið og bjúgu. Það var kokkurinn í mötuneytinu, Þröstur Harðarson, sem bauð Vilhjálmi í mat. Þröstur segist leggja sig fram við að hafa íslenskan mat á boðstólum sem oftast.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert