Kveikt í skotköku inni í bíl

Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um það klukkan 6 í morgun, að skothvellir heyrðust frá athafnasvæði bílamálunarfyrirtækis í bænum. Í ljós kom að þarna hafði einhver komið fyrir skotköku inni í BMW blæjubíl og kveikt í með þeim afleiðingum gat brann á blæjuna. Auk þess brann bíllinn nokkuð að innan.

Lögreglan segir, að ekki sé vitað hver var þarna að verki en lögregla biður þá, sem orðið hafa varir við umferð eða mannaferðir í Gagnaheiði við eða í nágrenni hringtorgsins á Eyravegi við Fossheiði að hafa samband í síma 480 1010.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert