Eimskip hækkar gjaldskrá

Gjaldskrá Eimskips fyrir flutninga innanlands hækkar um 4,5% 1. febrúar n.k. að því er fram kemur á heimasíðu Landssambands kúabænda. Þar segir að afgreiðslugjald muni hækka úr 129 krónum í 160 krónum, eða um 24%. Olíuálag lækki hins vegar lítillega í takt við lækkandi olíuverð.

Landssamband kúabænda segir, að hækkun á afgreiðslugjaldi sé íþyngjandi, þar sem gjald þetta er orðið mjög hátt hlutfall af heildar flutningskostnaði smávöru. Þá þurfi ekki að orðlengja um flutningskostnaðinn sjálfan, sem sé gríðarlega hár hér á landi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert