Fleygðu flatskjá í gegnum rúðu í Bræðrunum Ormsson til að komast út

Flatskjáir í Bræðrunum Ormsson.
Flatskjáir í Bræðrunum Ormsson. mbl.is/Golli

Brotist var inn í verslun Bræðranna Ormsson í nótt og tilraun gerð til að stela flatskjám. Þjófarnir læstust hins vegar inni og fleygðu flatskjá í gegnum rúðuna til að komast út og höfðu ekkert upp úr krafsinu. Allt var þetta tekið upp á eftirlitsmyndavél í versluninni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá þessu og varaði um leið við mikilli hálku í borginni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert