Fíkniefni fundust við húsleit

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra karlmenn og eina konu í austurborginni í gær en í vistaverum þeirra fundust ætluð fíkniefni. Talið er að þetta séu 30 gr af kókaíni, neysluskammtar af MDMA og maríjúana. Fólkið, sem er allt á þrítugsaldri, var handtekið í kjölfar húsleitar að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Fólkið er nú laust úr haldi en rannsókn málsins heldur áfram.

Það voru lögreglumenn frá embættum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóra sem tóku þátt í aðgerðinni ásamt lögreglumönnum frá Sauðárkróki.

Í gær handtók lögreglan einnig karlmann um tvítugt í Reykjavík en sá er grunaður um fíkniefnamisferli. Lögreglan fékk tilkynningu frá íbúa sem upplýsti um hugsanlega fíkniefnasölu í einu hverfa borgarinnar. Lögreglumenn fóru strax í málið og stöðvuðu hinn grunaða en í fórum hans fannst talsvert magn af ætluðu maríjúana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert