Háspenna ætlar að stækka spilasal við Hlemm

Til stendur að stækka spilasal Háspennu við Hlemm í Reykjavík og verður húsnæði bókabúðar við hliðina notað undir stækkunina. Háspenna kaupir spilakassaþjónustu af Happdrætti Háskóla Íslands. Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarpsins í kvöld. Ekkert varð af fyrirhuguðum spilasal Háspennu í Mjóddinni, fyrr á þessu ári, vegna mótmæla íbúa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert