"Höfum varla efni á að mála"

Hljómskálinn í Reykjavík útkrotaður.
Hljómskálinn í Reykjavík útkrotaður. Brynjar Gauti

„Þetta hefur verið vandamál undanfarin ár,“ segir Daníel Friðjónsson, formaður stjórnar Lúðrasveitar Reykjavíkur, um veggjakrot á Hljómskálanum við Fríkirkjuveg.

Um þessar mundir er húsið útbíað í slíku kroti og raunar hefur veggjakrot víða verið til ama í borginni í vetur.

Daníel segir sveitina ekki eiga peninga til að mála yfir krotið á húsinu um leið og þess verður vart. „Við höfum varla efni á að mála húsið einu sinni, hvað þá oft,“ segir hann. Nýtt krot bætist við í hverjum mánuði, en lúðrasveitin beri kostnað af viðhaldi við húsið. Hann segist vonast til að málað verði yfir veggjakrotið á Hljómskálanum með vorinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert