Prestar Digraneskirkju útskýra afstöðu sína

Prestar Digraneskirkju hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir útskýra þá afstöðu sína, að setja það skilyrði að fermingarbörn í Digranessókn væru í þjóðkirkjunni. Fram kemur, að prestarnir ákváðu í október sl. að fella þetta skilyrði niður í október á síðasta ári.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

    Í störfum okkar höfum við orðið varir við að fólk sem leitar til okkar með kirkjulega þjónustu og sálgæslu er í sumum tilvikum skráð í önnur trúfélög, án þess að það geri sér grein fyrir því. Okkur þótti ekki óeðlilegt að fólk sem þægi alla sína kirkjulegu þjónustu í Þjóðkirkjunni væri skráð í hana. Því settum við það skilyrði að fermingarbörn í Digranessókn væru í Þjóðkirkjunni.

    Þessi afstaða okkar vakti sterk viðbrögð  og ákváðum við því í samráði við biskup Íslands að fella umrætt skilyrði niður strax í október á síðasta ári.

    Það skal tekið fram að við höfum aldrei sett slíkt skilyrði varðandi aðra kirkjulega þjónustu.

    Í ljósi umfjöllunar fjölmiðla um málefni ungrar stúlku sem óskaði eftir að fermast í Digraneskirkju, hörmum við að hafa valdið henni og fjölskyldu hennar sársauka og biðjum þau afsökunar á því.

    Virðingarfyllst,
    sr. Magnús Björn Björnsson, prestur
    sr. Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert