Meirihluti veitinga- og kaffihúsa hafa ekki lækkað verð

mbl.is/Guðmundur Rúnar

Niðurstöður eftirlits Neytendastofu með verðlækkunum veitingahúsa hefur leitt í ljós að meirihluti veitinga- og kaffihúsa hafa ekki lækkað verð í kjölfar breytinga á skattlagningu matvæla og sem tók gildi 1. mars 2007. Í 54% þeirra tilvika sem könnuð voru hafði verðið hækkað eða staðið í stað en í 46% tilvika hafði verð lækkað í kjölfar breytingarinnar.

Neytendastofa aflaði gagna um verð hjá 84 veitingahúsum um land allt fyrir og eftir skattabreytinguna og fylgdi sérstaklega eftir ábendingum og kvörtunum sem bárust stofnuninni. Neytendastofa sendi bréf til veitinga- og kaffihúsa og einnig til mötuneyta sem ekki höfðu lækkað verð þar sem hlutaðeigandi voru hvattir til að lækka verð í samræmi við lækkun á virðisaukaskatti. Einnig var spurt um ástæður þess að verð hafði ekki lækkað.

Um 47% þeirra veitingahúsa sem fengu bréf frá stofnuninni eftir ábendingar frá neytendum kváðust þegar hafa lækkað verð. Í 53% tilvika bárust ekki svör frá veitingahúsum eða þau kváðust ekki ætla að lækka verð.

Samkvæmt því sem fram kemur á vef Neytendastofu má ætla að um 70% mötuneyta sem stofnunin sendi fyrirspurn til hafi ekki lækkað verð en í samantekt Neytendastofu kemur fram að einungis 12 mötuneyti eða 26% þeirra mötuneyta sem athugun Neytendastofu náði til hafi lækkað verð í tengslum við skattabreytingarnar.

Viðskiptaráðherra óskaði eftir því að Neytendastofa hefði eftirlit með því hvort breytingar sem myndu skila sér í verðlækkun til neytenda og þann 1. febrúar opnaði Neytendastofa rafræna vefgátt á heimasíðu sinni gagngert fyrir neytendur þar sem þeim gafst tækifæri á því að koma að nafnlausum ábendingum vegna skattalækkunarinnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert