Íkveikja ekki útilokuð í rannsókninni

Austurstræti 22 brann á miðvikudag.
Austurstræti 22 brann á miðvikudag. mbl.isSverrir
Eftir Andra Karl andri@mbl.is
„Það er verið að rannsaka alla þætti og þar á meðal hvort eldurinn hafi kviknað af mannavöldum," segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, spurður hvort hugsanlegt sé að glæpsamlegt athæfi tengist upptökum eldsvoðans í miðborg Reykjavíkur á miðvikudag. Tæknideild lögreglunnar lauk rannsókn á vettvangi síðdegis í gær og segir Stefán að hún hafi ákveðin gögn undir höndum sem þurfi að rannsaka nánar, með aðkomu fleiri sérfræðinga.

Fyrstu vísbendingar bentu til þess að kviknað hefði í út frá loftljósi í söluturninum Fröken Reykjavík en það var aðallega byggt á vitnisburði þeirra sem voru í húsunum þegar eldurinn uppgötvaðist. "Það sem bæst hefur við eru upplýsingar á vettvangi og nú erum við að reyna að púsla þessu saman," segir Stefán og áréttar að enn sé ekki tímabært að slá neinu föstu.

Kviknaði á versta stað

Útbreiðsluhraði eldsins hefur komið illa við marga og ekki að ósekju. Sex mínútum eftir að tilkynnt var um eldinn mættu fyrstu slökkviliðsmenn á staðinn og þá var umfangið þegar fyrirséð.

„Krafan um eldvarnarveggi kom ekki fyrr en eftir brunann mikla árið 1915, þegar hálfur miðbærinn brann, og þessi hús eru byggð miklu fyrr, þannig að eldvarnarveggir voru ekki fyrir hendi," segir Bjarni Kjartansson, sviðstjóri forvarnarsviðs slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Hann segir að eldurinn hafi ekki getað kviknað á verri stað, líklega fyrir innan klæðningu. Þar með hafi öll brunavörn verið farin og eldurinn taumlaus.

Slökkvistarfi lauk ekki fyrr en klukkan sex í gærmorgun þegar lögreglu var afhentur vettvangur.

Skaðinn var | 4

Í hnotskurn
» Álag á slökkviliðsmenn var með því mesta sem þeir þekkja og afkastagetan þanin til hins ýtrasta.
» Hátt í þrjú hundruð fyllingar af lofti voru notaðar. Það myndi duga reykkafara í köfun í tíu og hálfan sólarhring.
» Slökkvistarf hófst rétt fyrir klukkan tvö og síðustu slökkviliðsmenn fóru af vettvangi klukkan sjö í gærmorgun.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert