Pétur tekur við starfi hjá 365

Pétur Pétursson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri tekjusviðs 365 miðla ehf. Pétur hefur störf hjá félaginu í næsta mánuði. Innan tekjusviðs fer fram öll sala áskrifta á sjónvarpsstöðvum 365 miðla og auglýsingasala ljósvakamiðla félagsins og Fréttablaðsins.

Pétur hefur frá árinu 2005 verið framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu Tryggingamiðstöðvarinnar. Þar áður var hann forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Vodafone og starfaði einnig í hartnær áratug sem blaðamaður á DV og fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Pétur lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1992.

Helgi Björn Kristinsson lætur af starfi framkvæmdastjóra tekjusviðs innan tíðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert