Neysla á LSD hefur farið vaxandi

Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is
Íslenskur karlmaður um þrítugt var handtekinn á Suðurnesjum í síðustu viku með tæplega 700 skammta af ofskynjunarefninu LSD og nokkra skammta af amfetamíni. Lögreglumenn úr sérsveit ríkislögreglustjóra handtóku manninn og er málið í rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum.

Hefur maðurinn komið við sögu lögreglu áður vegna fíkniefnamála. Hann var yfirheyrður en rannsóknarhagsmunir kröfðust þess ekki að hann yrði hnepptur í gæsluvarðhald og var honum því sleppt en má vænta ákæru að rannsókn lokinni. Lögreglan segir manninn hafa viðurkennt vörslu efnanna en tjáir sig ekki um hvort grunur sé um að maðurinn hafi smyglað efnunum inn sjálfur. Fleiri hafa ekki verið handteknir vegna rannsóknarinnar.

LSD er ekki algengt fíkniefni á íslenskum fíkniefnamarkaði en þó eru dæmi um stór LSD-mál. Þannig var t.d. karlmaður dæmdur í langt fangelsi árið 2005 fyrir smygl á fíkniefnum þar af tvö þúsund skömmtum af LSD. Þá voru 4 þúsund skammtar teknir í einu máli sama ár og er það mesta magn sem fundist hefur í einu.

Skammtur af efninu mun kosta um tvö þúsund krónur samkvæmt verðkönnun SÁÁ á ólöglegum vímuefnum sem gerð var í október sl.

Að sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á Vogi, hefur LSD-neysla heldur farið vaxandi að undanförnu eftir að dregið hafði úr henni á liðnum árum. "Yfirleitt er um tímabundna neyslu að ræða," bendir hann á og bætir við að LSD-istar séu ekki til, á svipaðan hátt og alkóhólistar eða hassistar, svo dæmi séu tekin.

Neysla tengist skemmtunum

Einkum er LSD-neysla tengd skemmtunum og eitthvað mun vera um efnið í fangelsum. Neytendahópurinn er fólk upp á miðjan þrítugsaldurinn og tengist LSD ákveðnum böndum við diskó- og Rave-tónlistarmenningu.

"Menn nota þá ýmis efni saman, s.s. e-pillur og LSD ásamt örvandi efnum," segir hann. Hætturnar við neyslu á LSD felast fyrst og fremst í því að fólk getur orðið stjórnlaust eða geðveikt í vímunni, segir á heimasíðu SÁÁ. Ofskynjanirnar eru þó í réttu hlutfalli við skammtastærð og hættan eykst á slæmum viðbrögðum og geðveiki með stærri skömmtum. Þar kemur einnig fram að vímuáhrif LSD koma á 1 til 2 klukkustundum og fara eftir einstaklingnum sem í hlut á, skammtastærð, aðstæðunum sem efnið er notað við, væntingum neytandans og geðslagi hans. Viðbrögðin eru því mjög breytileg eftir einstaklingum og geta líka verið mjög mismunandi hjá sama einstakling.

Efnið fer misjafnlega í fólk og sumir lýsa reynslunni sem ánægjulegri meðan aðrir lýsa henni sem óskemmtilegri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert