Jón Ásgeir og Tryggvi sakfelldir vegna kreditreiknings frá Nordica

Fréttamenn ræða við Jakob R. Möller, lögmann Tryggva Jónssonar.

Fréttamenn ræða við Jakob R. Möller, lögmann Tryggva Jónssonar. mbl.is/ÞÖK

Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi bæði Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggva Jónsson fyrir brot á hegningarlögum með því að láta Jón Gerald Sullenberger útbúa tilhæfulausan kreditreikning frá Nordica Inc. fyrir upphæð að fjárhæð nærri 62 milljónir króna og rangfæra með því bókhalds Baugs.

Dómurinn vísaði hins vegar frá dómi ákæru á hendur Jóni Gerald fyrir að hafa aðstoðað Jón Ásgeir og Tryggva við að rangfæra bókhald Baugs og stuðla að bókhaldsbroti þeirra með því að útbúa framangreindan kreditreikning að tilhlutan Jóns Ásgeirs og samkvæmt fyrirsögn Tryggva. Segir dómurinn að þegar við fyrstu lögregluyfirheyrslu í ágúst 2002 og alltaf eftir það hafi lögreglu borið að láta Jón Gerald njóta réttarstöðu sakaðs manns en hann hafi haft stöðu vitnis alla rann­sókn málsins þótt hann væri í raun að tjá sig um atriði er hefðu getað leitt til ákæru á hendur honum.

Í dómnum segir, að kreditreikningurinn hafi verið rangur og tilhæfulaus og þeim Jóni Ásgeiri og Tryggva hafi báðum verið það ljóst. Brot þeirra hafi haft áhrif á árshlutauppgjör Baugs og þar af leiðandi hafi tilkynning félagsins til Verðbréfaþings Íslands verið röng. Á því hafi Jón Ásgeir borið ábyrgð sem framkvæmdastjóri fél­agsins.

Jón Ásgeir sakfelldur fyrir 1 ákærulið og Tryggvi fjóra
Dómurinn vísar 10 liðum ákærunnar frá og Jón Ásgeir er sýknaður af öllum öðrum ákæruatriðum. Tryggvi er hins vegar sakfelldur fyrir þrjá aðra ákæruliði, þar á meðal fyrir hegningarlagabrot með því að láta forsvarsmenn verslunarinnar P/F SMS í Færeyjum gera kreditnótu og færa í kjölfarið til tekna hjá Baugi 46,7 milljónir króna. Talið er ósannað að Jón Ásgeir hafi vitað af þessari færslu.

Tryggvi er einnig fundinn sekur um meiri háttar bókhaldsbrot samkvæmt tveimur ákæruliðum, sem snúast um tilhæfulausar færslur um viðskipti og notkun fjármuna í bókhald Baugs.

Þeir Jón Ásgeir og Tryggvi eru sýknaðir af ákæruliðum sem snúa að greiðslum frá Baugi til Nordica en sem að mati ákæruvaldsins fóru í rekstur skemmtibátsins Thee Viking. Segir í dómnum, að umræddir fjármunir hafi ekki runnið til félagsins Gaums, eins og segi í ákæru, heldur til Nordica en þeir Jón Ásgeir og Tryggvi séu ekki ákærðir fyrir að hafa dregið féð því félagi. Ekki megi dæma ákærðan mann fyrir aðra hegðun en þá sem í ákæru greini og með því að ósannað sé, að ákærðu hafi dregið Gaumi fé, eins og þeir séu ákærðir fyrir, verði þeir sýknaðir af þessum lið ákærunnar.

Þá er vísað frá ákæru hendur Tryggva fyrir að láta Baug greiða Nordica í Bandaríkjunum í 13 skipti reikninga, sem gefnir voru út vegna persónulegra útgjalda Tryggva. Segir dómurinn, að ákæran sé ekki nægilega skýr og sundurliðuð.

Málskostnaður fellur að mestu á ríkissjóð
Málskostnaður fellur, samkvæmt niðurstöðu dómsins, að mestu á ríkissjóð. Ákæran í málinu var upphaflega í 19 liðum en fyrsat lið hennar var vísað frá dómi á síðasta ári og í dómnum nú var 10 liðum til viðbótar vísað frá dómi auk ákæru á hendur Jóni Gerald.

Málsvarnarlaun Gests Jónssonar, verjanda Jóns Ásgeirs, eru ákveðin 15,3 milljónir og greiðast að 9/10 hlutum úr ríkissjóði. Málsvarnarlaun Jakobs R. Möller, verjanda Tryggva, eru ákveðin 11,9 milljónir og greiðast þau að 4/5 hlutum úr ríkissjóði. Málsvarnarlaun Brynjars Níelssonar, verjanda Jóns Geralds, eru ákveðin 7,9 milljónir og öll greidd úr ríkissjóði. Sakarkostnaður setts ríkissaksóknara nemur 55,8 milljónum og eru Jón Ásgeir og Tryggvi dæmdir til að greiða hluta þess kostnaðar, eða 5 milljónir króna.

Þá er fallist á ýmsan kostnað vegna varnar Jóns Ásgeirs, eða 25,7 milljónir króna og þarf hann að greiða 1/10 hluta hans, en 9/10 eru greiddir úr ríkissjóði.

Dómurinn í heild

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akgreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað inn tæplega 200 viðbótar undirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Chesterfield sófasett til sölu!
Vel með farið 10 ára gamalt Chesterfield sófasett 3+1+1 til sölu. Uppl í síma 86...
DÖMUSKÓR
Teg: 7315 Sérlega mjúki og þægi- legir dömuskór...
UKELELE
Ukulele í úrvali . Verð frá 5.900. Gítarinn ehf....
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
 
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...