Stjórn Baugs lýsir eindregnum stuðningi við Jón Ásgeir

Stjórn Baugs Group hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir, að fyrirtækið hafi frá upphafi málsins lýst yfir stuðningi við Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóra, í málinu sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í fyrr í dag. Lýsir stjórn félagsins áfram yfir eindregnum stuðningi við hann nú þegar þessi dómur liggur fyrir.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

    Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur felur í sér alvarlegan áfellisdóm yfir vinnubrögðum lögreglunnar og ákæruvaldsins í málinu. Hinn 28. ágúst 2002 var lagt af stað af hálfu lögreglu með alvarlegar ásakanir um stórfelld auðgunarbrot. Í dag var forstjóri félagsins sýknaður af eina brotinu sem var tilefni innrásinnar í Baug en sakfelldur vegna færslu reiknings, sem sérfræðingar efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra töldu fyrst að hefði verið grundvöllur fjárdráttar.

    Í þau nærfellt fimm ár sem rannsóknin hefur staðið hefur félagið ítrekað þurft að leiðrétta efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra þegar rannsóknin hefur hvað eftir annað beinst inn á ný svið, að því er virðist til þess eins að réttlæta mistök á upphafsstigum málsins. Þá hefur ákæruvaldið fengið ítarlegar leiðbeiningar dómstóla til að lagfæra málatilbúnað sinn. Af samtals 59 liðum í tveimur ákærum liggur nú fyrir að 43 hefur vísað frá, sýknað í 12 og sakfellt í 4, þar af einum ákærulið gagnvart Jóni Ásgeiri og öllum fjórum gagnvart Tryggva Jónssyni. Dómurinn fellir 90% hluta málskostnaðar Jóns Ásgeirs á ríkissjóð. Hér er samtals um að ræða tugi milljóna króna sem ríkissjóði er gert að greiða í málsvarnarlaun og sakarkostnað. Það endurspeglar mat dómsins á slælegum málatilbúnaði ákæruvaldsins. Þetta bætist við þá tugi milljóna króna sem ríkissjóði hefur áður verið gert að greiða í málskostnað á fyrri stigum málsins.

    Ákæruvaldið er í dóminum gagnrýnt fyrir að hafa blásið málið út umfram tilefni, málsmeðferð hafi verið of umfangsmikil og vitni leidd fyrir dóminn af þarflausu. Þegar litið er til þess að sakfelling í tilviki Jóns Ásgeirs virðist hvíla á afar veikum grundvelli, þ.e.a.s. framburði Jóns Geralds Sullenberger, verður að telja mjög líklegt að Jón Ásgeir muni í samráði við verjanda sinn áfrýja þeim þætti málsins til Hæstaréttar Íslands. Verulegar líkur eru taldar á að sú áfrýjun muni leiða til sýknu.

    Baugur Group hf. hefur frá upphafi málsins lýst yfir stuðningi við Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóra, í þessu máli. Lýsir stjórn félagsins áfram yfir eindregnum stuðningi við hann nú þegar þessi dómur liggur fyrir.

Undir yfirlýsinguna skrifar Hreinn Loftsson, stjórnarformaður, fyrir hönd stjórnar Baugs Group.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert