Háhýsastefna í mótun í Reykjavík
mbl.is/Ómar
Unnið er að stefnumótun til háhýsa í Reykjavíkurborg, að sögn Ólafar Örvarsdóttur, aðstoðarskipulagsstjóra í Reykjavík. „Vinna við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur er hafin en hana ber að gera á fjögurra ára fresti. Ýmis stefnumótandi mál eru tekin fyrir eins og háhýsa- og byggingalistarstefna,“segir Ólöf, sem reiknar með því að þessari vinnu verði lokið í byrjun næsta árs.
„Lykilorðið í nýju aðalskipulagsvinnunni er gæði. Í því felst margt sem telst til lífsgæða og er til dæmis verið að tala um í því samhengi hvað háhýsi gera fyrir borgarlandslagið og lífið milli þessara húsa.“ Ólöf segir að til dæmis þurfi að svara spurningum á borð við: Hvaða áhrif hafa háhýsi á nærumhverfi? Og: Hvernig búum við til góða borg miðað við okkar breiddargráðu?
„Þetta er stórt málefni og við finnum fyrir því að við þurfum að hafa háhýsastefnu. Þetta er eitthvað sem ekki bara Reykjavík vantar heldur eru margar borgir að glíma við þetta núna og gera sér grein fyrir að þessi stefna þurfi að vera fyrir hendi. Aðalskipulagshópurinn hefur verið að kynna sér hvað aðrar borgir á Norðurlöndum eru að gera. Mikil umræða hefur verið um háhýsi í Kaupmannahöfn, sem er að móta sér stefnu. Osló er með slíka stefnu en Helsinki og Stokkhólmur eru ekki með háhýsastefnu en búa hinsvegar yfir þeirri hefð að byggja ekki hátt í miðborgum.“
Ekki er til regla hérlendis um hversu hátt hús þurfi að vera til að teljast háhýsi. „Við höfum verið að horfa til Norðurlandanna þar sem hefðin er svona tíu hæðir. Talað hefur verið hér um átta hæða blokkir sem háhýsi svona manna á milli en við höfum enga formlega skilgreiningu,“ segir Ólöf og bætir við að í yfirstandandi stefnumótunarvinnu verði áreiðanlega skilgreint hvað teljist háhýsi í Reykjavík.
Háhýsi virðast vera í tísku sem stendur. „Við verðum vissulega vör við mikinn áhuga hjá framkvæmdaraðilum fyrir háum byggingum og skoðum hvert tilfelli gaumgæfilega.“
Nánar er fjallað um þetta í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Bloggað um fréttina
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir Gott að fá stefnu -
Vilhjálmur Þorsteinsson Skipulagi hefur farið aftur -
Sveinn Atli Gunnarsson Háhýsi?
Innlent »
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 28. apríl 2007, Innlent Hæsti turninn 100 metrar
- Fimmtudagur, 14. febrúar 2008, Innlent Smáratorg rifið og háhýsi byggt í staðinn?
- Föstudagur, 8. september 2006, Innlent Háhýsin ótæk hérlendis
- Þriðjudagur, 19. september 2006, Innlent Samþykkt að móta fjölskyldustefnu fyrir Reykjavík
- Fimmtudagur, 14. febrúar 2008, Innlent Gagnrýna áhrif háhýsa á umferð við Smárann
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































