Aukinn stuðningur við álver á Bakka á Norðausturlandi

Frá Húsavík
Frá Húsavík mbl.is/RAX

Nýleg skoðanakönnun, sem Capacent Gallup hefur gert á Norðausturlandi,sýnir að 69,5% íbúa eru hlynnt byggingu álvers á Bakka við Húsavík. Yfir 80% telja að bygging álvers myndi hafa jákvæð áhrif á búsetuskilyrði til lengri tíma á Norðurlandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Alcoa Fjarðaáli.

Niðurstaðan er byggð á svörum rúmlega 1500 manns á aldrinum 16-75 ára. Í könnun sem gerð var í desember sl. mældist stuðningur við álvershugmyndir á Bakka 58,2% á Norðausturlandi. Á Húsavík mælist stuðningurinn í nýju könnuninni 83% en var tæp 76% í desemberkönnuninni.

Alls reyndust 19,9% andvíg áformum um álver á Bakka í könnuninni nú, en voru 27,7% í í desember. Þá fer hlutlausum fækkandi í könnuninni, þeir eru 10,6% en voru 14,1% í desemberkönnun Capacent Gallup. Þegar eingöngu er tekið tillit til viðhorfa Húsvíkinga kemur í ljós að 10,3% þeirra eru nú andvíg álversáformum en hlutfallið var 17,9% í desember.

Vaxandi meirihluti svarenda er jákvæður í garð Alcoa Fjarðaáls í könnuninni á Norðausturlandi. Þannig svöruðu 67% því til að þeir væru frekar eða mjög jákvæðir í garð fyrirtækisins. Sambærilegt hlutfall í desemberkönnuninni reyndist 58,7%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert