Mengun í Elliðaánum

Einkennilegur litur á Elliðaánum,
Einkennilegur litur á Elliðaánum,
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „Ef þessar fréttir reynast réttar er þetta kjaftshögg fyrir okkur," segir Örn Sigurðsson, settur sviðsstjóri mengunarvarna hjá Reykjavíkurborg, sem síðdegis í gær barst ábending um mengun í Elliðaánum. Vart hefur orðið mengunar í Elliðaánum að undanförnu, sem m.a. birtist í grunsamlegum vatnslit á ánum og telja sumir sig geta greint olíubrákir niður eftir þeim.

Að sögn Arnar verður það hans fyrsta verk að kanna málið í dag og bregðast við eftir atvikum. Segir hann óviðunandi ef rétt reynist að mengun berist í árnar úr öðru sveitarfélagi, ekki síst í ljósi þess að Reykjavíkurborg hafi á umliðnum árum eytt ómældum tíma og fjármunum í að halda Elliðaánum hreinum, t.d. með því að koma upp settjörnum sem taka við yfirborðsvatni svo það mengi ekki árnar. „Ég óttast að svona mengun geti haft áhrif á dýralífið í ánum."

Að sögn Magnúsar Sigurðssonar, sem starfar að umsýslu fasteigna hjá OR, er annars vegar um að ræða rör frá iðnaðarhverfi í Kópavogsbæ sem liggur út í ána skammt frá Breiðholtsbrú, en með því berist sjóðandi heitt vatn og "önnur óþekkt efni", eins og hann orðar það. Hins vegar sé um að ræða rör sem liggi frá bílaþvottastöð skammt frá Sprengisandi, en við ákveðin skilyrði berist sápa þaðan út í árnar. Aðspurður segir hann ástandið hafa verið svona í tæpt ár og hann hafi ítrekað sett sig í samband við Kópavogsbæ til að benda mönnum á málið en án viðbragða.

Settjörn væntanleg

Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar Kópavogsbæjar, staðfesti að yfirborðsvatn úr neðsta hluta iðnaðarhverfisins í Urðarhvarfi rynni út í Elliðaárnar, en tók fram að ekki væri um skólp að ræða. Sagði hann fyrirhugað að koma upp settjörn síðar á þessi ári til þess að taka við þessu yfirborðsvatni. Sagði hann af og frá að heitt vatn flæddi út í árnar frá Kópavogsbæ, enda væri tvöfalt kerfi í hitaveitunni í Vatnsenda, sem tryggði það að allt heitt vatn rynni til baka til hitaveitunnar. Aðspurður sagðist hann þess fullviss að dýralíf Elliðaánna hefði ekki hlotið skaða af yfirborðsvatninu sem flætt hefði í árnar, enda hefði það verið í svo litlu magni, og að það hefði verið ástæða þess að ekki hefði þótt ástæða til að koma upp settjörn fyrr.
Í hnotskurn
» Deildarstjóri framkvæmdadeildar Kópavogsbæjar segir aðeins um yfirborðsvatn að ræða.
»Y firborðsvatn úr neðsta hluta iðnaðarhverfis í Urðarhvarfi rennur út í Elliðaárnar.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert