Spilling talin lítil á Íslandi

Spilltir dómarar og lögfræðingar koma í veg fyrir að einstaklingar víða um heim geti fengið sanngjörn réttargjöld, að því er kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna Transparency International. Skýrslan byggðist á spurningalistum sem lagðir voru fram í 32 ríkjum og er komist að þeirri niðurstöðu að spilling sé næst minnst á Íslandi.

Kemur þar fram að spilling í dómskerfinu skiptist yfirleitt í tvo flokka, afskipti framkvæmda- og löggjafarvaldsins og svo mútur.

Argentína og Rússland eru nefnd sem dæmi um ríki þar sem grafið hefur verið undan sjálfstæði dómstóla með afskiptum stjórnmálamanna. Er þetta sagt hafa einkar slæm áhrif, rödd hinna saklausu heyrist ekki og hinir seku komist hjá refsingu. Dæmi um það síðarnefnda sé þegar dómari kýs að taka ekki til greina sönnunargögn, í því skyni að geta kveðið upp sýknudóm yfir spilltum stjórnmálamanni. Lág laun dómara geti aukið líkur á mútum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert