Sporvagn í Reykjavík?

Sporvagnar gætu reynst kostur í samgöngum borgarinnar.
Sporvagnar gætu reynst kostur í samgöngum borgarinnar.
Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is
Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfisráðs Reykjavíkurborgar, og Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingar, settu báðir fram þá hugmynd í erindum sínum á ráðstefnu um framtíð Örfiriseyjar í gær, að komið yrði á sporvagnatengingu frá svæðinu og að fyrirhugaðri byggð í Vatnsmýri.

Sagði Gísli Marteinn að stofnkostnaður 6 km langrar sporvagnaleiðar yrði um 8-10 milljarðar kr. og rekstrarkostnaður milljarður á ári.

Íbúar í fyrirhuguðum hverfum hefðu færri bílastæði en aðrir borgarbúar en ættu á móti þess kost að hafa sporvagninn í nágrenninu.

Tekið skal fram að enn á eftir að koma í ljós hvort fýsilegt sé að byggja í eynni, m.a. m.t.t. til samgangna. Þá á starfshópur um möguleikann á flutningi olíubirgðastöðvarinnar í eynni eftir að skila áliti, sem mun vega þungt um framhaldið. Þá er óvíst með framtíð flugvallarins í Vatnsmýri. Fjallað er um skipulag í Örfirisey og fyrirhugaða „Heimsviðskiptamiðstöð í Reykjavík" við höfnina í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert