Ökumaður á ofsahraða reyndi að ná flugi

mbl.is

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nú í morgunsárið franskan ferðamann sem ók á 176 km hraða við Rauðavatn. Var maðurinn á leið til Keflavíkurflugvallar þar sem hann var að missa af flugvél. Honum var gert að koma á lögreglustöð og ganga frá málinu, og varð af fluginu, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert