Ökumaður bifhjóls hálsbrotnaði er hann ók aftan á bifreið í nótt

Ökumaður bifhjóls er alvarlega slasaður eftir að hann ók aftan á bifreið á Breiholtsbraut í nótt. Að sögn læknis á slysadeild Landspítalans hlaut maðurinn hálsbrot. Gerð var á honum aðgerð strax í nótt. Slysið varð á móts við hesthúsin í Víðidal, en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í nótt féll hjólið í götuna er því var ekið á bílinn. Annar bifhjólamaður sem var með í för datt einnig.

Ökumenn bifhjólanna höfðu ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við Rauðavatn skömmu áður.

Lögreglan á Selfossi hafði haft samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu skömmu eftir miðnætti og tilkynnt að tvö bifhjól hefðu mælst á 178 km hraða á Hellisheiði. Eins og áður sagði reyndi lögreglan að stöðva för bifhjólamannanna við Rauðavatn, en þeir sinntu ekki stöðvunarmerkjum og héldu för sinni áfram upp Breiðholtsbrautina á ofsahraða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert